Fyrstu meistaranemar í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

Háskólinn á Akureyri brautskráir í dag frá Hjúkrunarfræðideild fyrstu níu stúdentana úr ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Námið er 60 ECTS viðbótarnám á meistarastigi kennt í samstarfi við Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands og veita skólarnir prófið sameiginlega. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirrar auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana.