
Kvennakórar komu saman til æfinga og söngs
Dagana 11.-13. júní sl. tók Kvennakórinn Ymur frá Akranesi þátt í Landsmóti íslenskra kvennakóra. Kórinn var þó án nokkurra af sínum konum sem höfðu kosið að hefja sumarfríið fyrr. Mótið er haldið á vegum Gígjunnar, sem er Landssamband íslenskra kvennakóra, og fer fram á mismunandi stöðum á þriggja ára fresti. Að þessu sinni voru gestgjafarnir Kvennakór Suðurnesja og var mótið því haldið í Reykjanesbæ. Þema mótsins var „Eldgyðjur“ og e.t.v. ekki erfitt að geta sér til um ástæðuna fyrir því vali. Aðildarkórar Gígjunnar eru alls 25 en 12 þeirra tóku þátt að þessu sinni og koma þeir víða að.
Mótið er byggt upp af tvennum tónleikum og vinnu í smiðjum. Auk þess er fjölmargt fleira skemmtilegt sem fer fram, bæði skipulagt og ekki. Að þessu sinni kom uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir til dæmis fram við setningu mótsins og skemmti kórkonum.
Fyrri tónleikarnir voru haldir í Stapa í Hljómahöllinni á föstudagskvöldinu. Þar komu allir kórarnir fram og fluttu lög af eigin efnisskrá. Kvennakórinn Ymur valdi að flytja lögin May it be úr The Lord of the Rings: The Fellowsip of the Ring - og Einhversstaðar einhvern tímann aftur eftir Magnús Eiríksson. Í síðara laginu söng Jónína Björg Magnúsdóttir einsöng með miklum glæsibrag. Kórinn söng undir styrkri stjórn Sigríðar Havsteen Elliðadóttur við undirleik Arnórs Vilbergssonar.
Smiðjurnar starfa allt kóramótið, en þær eru skipulagðar fyrirfram og kórarnir fá að velja sér smiðju til að taka þátt í. Smiðjurnar að þessu sinni höfðu yfirskriftina: Kæru systur, Hljómar frá Keflavík, Kona, Gospelgyðjur og síðast en ekki síst Hvað er í bíó? Sú síðartalda var einmitt smiðjan sem Kvennakórinn Ymur valdi að taka þátt í. Þar hittu Skagakonurnar fyrir konur úr Kvennakór Ísafjarðar og Heklunum í Mosfellsbæ. Smiðjunni var stjórnað af Dagnýju Þórunni Jónsdóttur og undirleikari var Geirþrúður Fanney Bogadóttir. Samstarfið tókst með miklum ágætum. Lögin sem æfð voru í smiðjunni voru I’m not that girl úr kvikmyndinni Wicked, Never enough úr The greatest showman og Skyfall úr samnefndri kvikmynd um James Bond.
Á síðari tónleikunum, sem haldnir voru í Stapaskóla á laugardeginum, fengu kórkonur tækifæri til að sýna afrakstur æfinganna úr smiðjunum. Því til viðbótar sameinuðust allir kórarnir, eða um 330 konur, í að flytja tvö sameiginleg lög. Fyrra lagið var Little talks með hljómsveitinni Of Monsters and men. En síðara lagið var samið sérstaklega fyrir mótið og var því frumflutt á þessum tónleikum. Höfundur lagsins er hinn ástsæli tónlistarmaður Magnús Þór Sigmundsson sem hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi í marga áratugi. Lagið samdi hann við ljóðið Taktur trumbunnar eftir Rut Gunnarsdóttur frá Krossi í Innri-Akraneshreppi. Rut lést árið 2006 en síðustu árin bjó hún í Hveragerði og eignaðist þar góða vini í Magnúsi og konu hans, Jennýju Borgedóttur. Magnús var viðstaddur tónleikana. Það var tilfinningarík stund eftir flutninginn þar sem Magnúsi var þakkað og hann lýsti ánægju sinni með flutninginn og minntist Rutar vinkonu sinnar.
Eftir tónleikana var mótið kvatt með veglegri hátíð í Blue höllinni þar sem góður matur og stórgóð skemmtiatriði fóru saman og ekki skemmdi fyrir að slá botninn í allt í alvöru sveitaballastíl með hljómsveitinni Nostalgíu, en þeir strákar virðast kunna allt sem komið hefur út síðustu fjóra til fimm áratugina og jafnvel lengur.
Fréttatilkynning frá Kvennakórnum Ymi

