
Hér er hópurinn nýlega lagður af stað frá Stillholti áleiðis að Jaðarsbökkum. Gulir Skagamenn fremstir í flokki, en önnur íþróttafélög í stafrófsröð á eftir. Ljósmyndir: Skessuhorn mm/ki
Íbúafjöldinn á Akranesi tvöfaldast um helgina
Norðurálsmótið í knattspyrnu er nú hafið á Akranesi. Klukkan 11 fór skrúðganga allra þátttakenda frá Stillholti að Jaðarsbökkum þar sem mótið var sett. Leikskólabörn á Akranesi stilltu sér upp með fána og veifur og buðu gestina velkomna. Meðfylgjandi myndir sýna stemninguna og ekki síður fjöldan á mótinu. Miðað við að keppendur séu um tvö þúsund má gera ráð fyrir því að gestafjöldinn í bænum sé nú um 8000, eða svipaður fjöldi og allir íbúar á Akranesi. Mótið fer á fullt strax í dag og stendur til sunnudags. Veðurspá er hagstæð; norðan vindur, sól að mestu og hlýnandi fram á morgundag.