Fréttir

true

Úthlutað úr Matvælasjóði

Í síðustu viku var úthlutað 479 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hlutu 42 verkefni styrk en 131 umsókn upp á rúmlega tvo milljarða barst til sjóðsins. Hæstu styrkir nema 30 milljónum króna. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun,…Lesa meira

true

Sjómannadagshelgin í Grundarfirði fór vel fram – myndasyrpa

Það var mikið fjör um liðna helgi þegar Grundfirðingar fögnuðu sjómannadagshelginni. Varðskipið Óðinn kom í heimsókn á föstudeginum, fyrrverandi sjómenn voru heiðraðir og keppt var í hinum ýmsu þrautum á laugardeginum. Veðrið var milt og gott og var ekki annað að sjá en að allir hafi skemmt sér konunglega. Aðalsteinn Valur Grétarsson ljósmyndari var á…Lesa meira

true

Skagakonur með jafntefli eftir fjörugan fyrri hálfleik

ÍA og Völsungur áttust við í Lengjudeild kvenna, laugardaginn 6. júní á GPG vellinum á Húsavík. Fyrri hálfleikur var fjörugur þar sem fjögur mörk litu dagsins ljós. Það voru Skagakonur sem brutu ísinn en á 7. mínútu skoraði Alexia Maletis og staðan 1-0 fyrir ÍA. Alexi Maletis er næst markahæst í deildinni með sex mörk,…Lesa meira

true

Mikið markaregn í Vesturlandsslag

Víkingur Ólafsvík mætti Kára frá Akranesi laugardaginn 6. júní í sjöttu umferð 2. deildar karla í fótbolta. Spilað var á Víkingsvellinum í Ólafsvík. Það er óhætt að segja að leikurinn hafi verið hin besta skemmtun. Káramenn byrjuðu leikinn betur og sóttu af krafti og komust í 1-0 á fyrstu mínútum leiksins. Á 27. mínútu náðu…Lesa meira

true

Þungarokkshátíðin Sátan var haldin í Stykkishólmi um helgina – myndasyrpa

Þungarokkshátíðin Sátan fór fram í Stykkishólmi dagana 4.-6. júní við góðar undirtektir gesta og þátttakenda. Um 650 manns sóttu hátíðina sem bauð upp á fjölbreytta dagskrá fyrir ólíka hópa hátíðargesta. Meðal viðburða voru málþing á Fosshóteli, golfmót á Víkurvelli, gönguferð þar sem farið var yfir sögu þungarokks á Íslandi, auk bingós og pub quiz á…Lesa meira

true

Stór brautskráning hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

Brautskráning nemenda frá Landbúnaðarháskóla Íslands fór fram síðastliðinn fimmtudag við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Hópur nemenda kvaddi skólann og heldur nú út í atvinnulífið eða til frekara náms. Verðlaunahafar í búfræði Af búfræðibraut útskrifuðust 19 nemendur. Rökkvi Hljómur Kristjánsson rakaði til sín verðlaunum fyrir frábæran árangur, en hann lauk búfræðiprófi með einkunnina, 9,41.…Lesa meira

true

Steinunn tekur við stjórn tveggja kóra

Steinunn Þorvaldsdóttir tónlistarkona og ljósmyndari hefur tekið við starfi söngstjóra í tveimur kórum. Annars vegar Kirkjukór Borgarneskirkju og hins vegar hjá Karlakórnum Söngbræðrum. Hún tekur við starfi Jónínu Ernu Arnardóttur í Borgarneskirkju en af Viðari Guðmundssyni með Söngbræður. Í tilkynningu frá Karlakórnum Söngbræðrum segir m.a: „Eftir 20 ára einstaklega ánægjulegt og farsælt samstarf ákvað Viðar…Lesa meira

true

Styrkja farnetið vegna sólmyrkvans

Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja sérstaklega úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst í sumar. Ráðuneytið segir að búist sé við miklum fjölda fólks á þeim svæðum landsins þar sem almyrkvi á sólu verður mestur og varir lengst. Þar á meðal eru Reykjanes, Vesturland og Vestfirðir. Mikill fjöldi gesta getur…Lesa meira

true

Fyrsta opna Ungmennahúsið í Dölum er í kvöld

Það er nauðsynlegt að hlúa að unga fólkinu okkar, þar sem er að finna framtíðarleiðtoga lands og þjóðar. Í því sambandi er mikilvægt að skapa þeim vettvang þar sem þau geta hist, að börn hafi samastað þar sem þau geta safnast saman og fái öll tækifæri til þess að láta rödd sína heyrast, t.d. með…Lesa meira

true

Tveir sjómenn heiðraðir á Akranesi

Við athöfn í Akraneskirkju í morgun voru tveir sjómenn á Akranesi heiðraðir fyrir störf sín. Þetta voru þeir Erling Þór Pálsson og Haraldur Jónsson. Meðfylgjandi mynd er tekin eftir að blómsveigur hafði verið lagður að styttunni af Sjómanninum á Akratorgi. F.v. Erling Þór Pálsson, Haraldur Jónsson, sr. Þóra Björg Sigurðardóttir, Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og…Lesa meira