
Mikil ákefð og leikgleði einkenndi leikinn. Ljósm. af
Mikið markaregn í Vesturlandsslag
Víkingur Ólafsvík mætti Kára frá Akranesi laugardaginn 6. júní í sjöttu umferð 2. deildar karla í fótbolta. Spilað var á Víkingsvellinum í Ólafsvík. Það er óhætt að segja að leikurinn hafi verið hin besta skemmtun. Káramenn byrjuðu leikinn betur og sóttu af krafti og komust í 1-0 á fyrstu mínútum leiksins. Á 27. mínútu náðu Víkingsmenn að jafna leikinn, en eftir markið var talsvert meira jafnræði með liðunum. Víkingur náði síðan að komast yfir á 38. mínútu með marki eftir hornspyrnu og staðan 2-1 í hálfleik.