
Ný slegið þang komið á land og bíður þurrkunar hjá Icea ehf í Stykkishólmi. Fyrirtækið hlaut hæsta styrkinn sem rann til Vesturlands. Ljósm. Skessuhorn/óhk
Úthlutað úr Matvælasjóði
Í síðustu viku var úthlutað 479 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hlutu 42 verkefni styrk en 131 umsókn upp á rúmlega tvo milljarða barst til sjóðsins. Hæstu styrkir nema 30 milljónum króna. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun á erlendum mörkuðum. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.