Steinunn Þorvaldsdóttir kórstjóri. Ljósm. aðsend

Steinunn tekur við stjórn tveggja kóra

Steinunn Þorvaldsdóttir tónlistarkona og ljósmyndari hefur tekið við starfi söngstjóra í tveimur kórum. Annars vegar Kirkjukór Borgarneskirkju og hins vegar hjá Karlakórnum Söngbræðrum. Hún tekur við starfi Jónínu Ernu Arnardóttur í Borgarneskirkju en af Viðari Guðmundssyni með Söngbræður.