
Á föstudeginum var krökkum boðið að spreyta sig í kararóðri, flekahlaupi og koddaslag í Sundlaug Grundarfjarðar og var mikið fjör. Á myndinni er Eyjar Óli að keppast við að komast yfir.
Sjómannadagshelgin í Grundarfirði fór vel fram – myndasyrpa
Það var mikið fjör um liðna helgi þegar Grundfirðingar fögnuðu sjómannadagshelginni. Varðskipið Óðinn kom í heimsókn á föstudeginum, fyrrverandi sjómenn voru heiðraðir og keppt var í hinum ýmsu þrautum á laugardeginum. Veðrið var milt og gott og var ekki annað að sjá en að allir hafi skemmt sér konunglega. Aðalsteinn Valur Grétarsson ljósmyndari var á ferðinni og myndaði það sem fyrir augu bar.