
Fyrsta opna Ungmennahúsið í Dölum er í kvöld
Það er nauðsynlegt að hlúa að unga fólkinu okkar, þar sem er að finna framtíðarleiðtoga lands og þjóðar. Í því sambandi er mikilvægt að skapa þeim vettvang þar sem þau geta hist, að börn hafi samastað þar sem þau geta safnast saman og fái öll tækifæri til þess að láta rödd sína heyrast, t.d. með því að benda á það sem má betur fara í sveitarfélaginu. Ungmennahús er frábær vettvangur til þess rækta vináttu, leikið sér og haft gaman. Í sumar býður Dalabyggð upp á stað þar sem ungt fólk getur komið saman, en fyrirhugað er að hafa opið hús í Nýsköpunarsetrinu í sýsluhúsinu þar sem ungt fólk (árgangur 2009 og upp úr) er boðið velkomið.
Um er að ræða nokkur kvöld í sumar og er allt ung fólk hvatt til að mæta og gera þetta að skemmtilegum kvöldstundum. Húsið verður opið frá kl. 20 til 23 og aðgangur er ókeypis. Fyrstu tvö kvöldin eru mánudagurinn 8. júní (í kvöld) og fimmtudagurinn 11. júní. Það verður boðið upp á kaffi en öllum er frjálst að mæta með snarl, spil, handavinnu, tónlist og allskonar annað uppbyggilegt og skemmtilegt. Borðtennisborð úr skólanum verður á staðnum. Rétt er að taka fram að notkun hvers konar vímuefna er óheimil. Allir áhugasamir, sem vilja vita meira og/eða hafa góðar hugmyndir um dagskrá á þessum kvöldum, er bent á að hafa samband á netfangið kiddi@ssv.is
