
Skagakonur með jafntefli eftir fjörugan fyrri hálfleik
ÍA og Völsungur áttust við í Lengjudeild kvenna, laugardaginn 6. júní á GPG vellinum á Húsavík. Fyrri hálfleikur var fjörugur þar sem fjögur mörk litu dagsins ljós. Það voru Skagakonur sem brutu ísinn en á 7. mínútu skoraði Alexia Maletis og staðan 1-0 fyrir ÍA. Alexi Maletis er næst markahæst í deildinni með sex mörk, einu á eftir Nicole Douglas í Völsungi. Adam var ekki lengi í paradís því Auður Ósk Kristjánsdóttir var fljót að jafna metin fyrir Völsung með marki á 9. mínútu. Þetta var jafn leikur og skiptust liðin á að sækja. Eftir nákvæmlega tuttugu mínútna leik náðu heimakonur að komast yfir með marki Hildar Lailu Hákonardóttur. Skagakonur létu ekki deigan síga og jöfnuðu metin á síðustu mínútu fyrri hálfleiksins, en markið skoraði Selma Dögg Þorsteinsdóttir og staðan orðin jöfn 2-2.