
Frá Akratorgi í morgun. Ljósm. Kolla Ingvars
Tveir sjómenn heiðraðir á Akranesi
Við athöfn í Akraneskirkju í morgun voru tveir sjómenn á Akranesi heiðraðir fyrir störf sín. Þetta voru þeir Erling Þór Pálsson og Haraldur Jónsson. Meðfylgjandi mynd er tekin eftir að blómsveigur hafði verið lagður að styttunni af Sjómanninum á Akratorgi. F.v. Erling Þór Pálsson, Haraldur Jónsson, sr. Þóra Björg Sigurðardóttir, Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og fánaberi var Guðmundur Rúnar Davíðsson.