Fréttir

true

Erum mjög samrýmdir – búnir að vera í þessu saman í 40 ár

Gunnlaugur og Víðir Pálmasynir, strandveiðisjómenn frá Akranesi Strandveiðar eru mikilvægar fyrir hinar dreifðu byggðir landsins þegar kemur að atvinnulífi og uppbyggingu. Þær stuðla að nýliðun í sjávarútvegi, auka tekjur heimila, lífga upp á hafnarsvæði og veita fólki, sem ekki hefur yfir hefðbundnu aflamarki að ráða, tækifæri til að stunda sjómennsku. Helstu kosti og mikilvægi strandveiða…Lesa meira

true

Ný bæjarstjórn formlega tekin til starfa í Snæfellsbæ

Í gær, fimmtudaginn 4. júní, kom ný bæjarstjórn Snæfellsbæjar saman á sínum fyrsta fundi og hefur formlega tekið til starfa. Á fundinum var m.a. kosið í embætti forseta bæjarstjórnar, bæjarráð og nefndir sveitarfélagsins. Auður Kjartansdóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar og Júníana Björg Óttarsdóttir fyrsti varaforseti. Júníana Björg var einnig kjörin formaður bæjarráðs. Á fundinum var…Lesa meira

true

Varað við tínslu kræklings úr fjöru í Hvalfirði og víðar

Í árlegum vorleiðangri Hafró greindust eiturþörungar í miklu magni í sjósýnum í Faxaflóa og fyrir sunnan landið. Tíðarfar í maí var tiltölulega gott, sérstaklega suðvestanlands og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel. Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling úr fjörum sunnan og suðvestanlands, hvort…Lesa meira

true

Sveitarstjóri og ný sveitarstjórn tekin við

Nýkjörin sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tók formlega til starfa og hélt sinn fyrsta fund í gær, fimmtudaginn 4. júní, sem jafnframt var 444. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar frá upphafi fyrir 20 árum. Á fundinum var m.a. kosið í embætti oddvita sveitarstjórnar og ýmsar nefndir sveitarfélagsins. Á fundinum var einnig samþykktur samhljóða ráðningarsamningur við Bjarka Þorsteinsson sem mun gegna…Lesa meira

true

Borað verður í haust

Veitur munu hefja framkvæmdir við borplan ofan við sturturnar á Langasandi á Akranesi í lok ágúst. Upphaflega stóð til að borað yrði í vor, en nú er stefnt að því í október og nóvember. „Framkvæmdin er mikilvæg fyrir hitaveituna á Akranesi til að bæta afhendingaröryggi til íbúa og fyrirtækja. Vitað er að jarðhiti er á…Lesa meira

true

Fjallað var um eignarhald á landbúnaðarlandi á málstofu á Hvanneyri

Landbúnaðarháskóla Íslands hélt í vikunni ráðstefnu um eignarhald á landbúnaðarlandi hér á landi. Á málstofunni kynntu Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir nýja skýrslu sem unnin var fyrir LbhÍ. Skýrslan fjallar um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi og þróun regluverks. Einnig er gerður samanburður við önnur Norðurlönd, ESB og Bretland á eignarhaldi landbúnaðarlands. Í skýrslunni…Lesa meira

true

Sveitarfélögin við Breiðafjörð mótmæla harðlega

Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur hafa sent frá sér sameiginlega ályktun þar sem mótmælt er harðlega ákvörðun Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með mánudeginum 8. júní. Í ályktuninni harma sveitarfélögin og mótmæla harðlega þeirri ákvörðun…Lesa meira

true

Ég held ég hafi verið þokkalega duglegur

Rætt við Jóhann Lundberg Steinsson sjómann og vélstjóra í Ólafsvík Það er erfitt að sitja lengi með Jóhanni Lundberg Steinssyni án þess að brosa og skella upp úr. Hann tekur á móti blaðamanni Skessuhorns með bros á vör, segir elsku drengurinn og þó að blaðamaður hafi einhverja reynslu til sjós þarf hann að hafa sig…Lesa meira

true

Kátir krakkar frá Kátadal komu færandi hendi

Á dögunum komu krakkarnir í Kátadal í Búðardal færandi hendi í íþróttamiðstöðina og afhentu glæsilegt listaverk sem þau höfðu unnið saman að á umliðnum vetri. Verkið er sumarlegt og birta yfir því, sem vonandi gefur fyrirheit um gott sumar á landinu.  „Verkið er afrakstur góðrar samvinnu og sköpunargleði barnanna,“ segir í tilkynningu frá Dalabyggð. Verkið…Lesa meira

true

Það þarf engin segl hjá okkur – við erum seglin

Einar Jóhann Lárusson skipstjóri og frændi hans Hjalti Jón Helgason voru staddir á bryggjunni í Stykkishólmi þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við á ferð sinni nýverið í björtu og fallegu maíveðri. Þeir félagar gera á grásleppu út bátinn Kviku SH 292. Eruð þið að landa, spyr blaðamaður. „Nei, nei við erum að gera klárt fyrir…Lesa meira