Einar Jóhann Lárusson og Hjalti Jón Helgason eru engir meðalmenn. Ljósm. óhk

Það þarf engin segl hjá okkur – við erum seglin

Einar Jóhann Lárusson skipstjóri og frændi hans Hjalti Jón Helgason voru staddir á bryggjunni í Stykkishólmi þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við á ferð sinni nýverið í björtu og fallegu maíveðri. Þeir félagar gera á grásleppu út bátinn Kviku SH 292. Eruð þið að landa, spyr blaðamaður. „Nei, nei við erum að gera klárt fyrir morgundaginn. Við ætluðum að róa í dag en gátum það ekki vegna þess að það fór í bátnum alternatorinn. Pabbi brunaði suður til Reykjavíkur til þess að kaupa nýjan og planið er að koma honum í bátinn í kvöld,“ sagði Einar.