Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar. F.v: Sigrún Erla Sveinsdóttir, Jóhanna Jóhannesdóttir, Júníana Björg Óttarsdóttir, Eiríkur Böðvar Rúnarsson, Auður Kjartansdóttir, Illugi Jens Jónasson, Urszula Zyskowska og Kristinn Jónasson, bæjarstjóri. Ljósm. Snæfellsbær

Ný bæjarstjórn formlega tekin til starfa í Snæfellsbæ

Í gær, fimmtudaginn 4. júní, kom ný bæjarstjórn Snæfellsbæjar saman á sínum fyrsta fundi og hefur formlega tekið til starfa. Á fundinum var m.a. kosið í embætti forseta bæjarstjórnar, bæjarráð og nefndir sveitarfélagsins. Auður Kjartansdóttir var kjörin forseti bæjarstjórnar og Júníana Björg Óttarsdóttir fyrsti varaforseti. Júníana Björg var einnig kjörin formaður bæjarráðs. Á fundinum var einnig samþykktur nýr ráðningarsamningur við Kristinn Jónasson sem mun áfram gegna starfi bæjarstjóra líkt og undanfarin 28 ár.