Borsvæðið er nærri þeim stað sem bláfáninn er á þessari mynd.

Borað verður í haust

Veitur munu hefja framkvæmdir við borplan ofan við sturturnar á Langasandi á Akranesi í lok ágúst. Upphaflega stóð til að borað yrði í vor, en nú er stefnt að því í október og nóvember. „Framkvæmdin er mikilvæg fyrir hitaveituna á Akranesi til að bæta afhendingaröryggi til íbúa og fyrirtækja. Vitað er að jarðhiti er á Skaganum, en hingað til hefur ekki fundist vatn á sömu stöðum. Vonir standa til að á þessum stað finnist heitt vatn í nýtanlegu magni til að auka forða fyrir vaxandi samfélag,“ segir í tilkynningu Veitna til íbúa á svæðinu í kringum þann stað sem borað verður.