Listaverkið er sumarlegt og litríkt. Ljósm. Dalabyggð

Kátir krakkar frá Kátadal komu færandi hendi

Á dögunum komu krakkarnir í Kátadal í Búðardal færandi hendi í íþróttamiðstöðina og afhentu glæsilegt listaverk sem þau höfðu unnið saman að á umliðnum vetri. Verkið er sumarlegt og birta yfir því, sem vonandi gefur fyrirheit um gott sumar á landinu.  „Verkið er afrakstur góðrar samvinnu og sköpunargleði barnanna,“ segir í tilkynningu frá Dalabyggð.