
Nýkjörin sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ásamt Bjarka sveitarstjóra. Ljósm. aðsend
Sveitarstjóri og ný sveitarstjórn tekin við
Nýkjörin sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tók formlega til starfa og hélt sinn fyrsta fund í gær, fimmtudaginn 4. júní, sem jafnframt var 444. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar frá upphafi fyrir 20 árum. Á fundinum var m.a. kosið í embætti oddvita sveitarstjórnar og ýmsar nefndir sveitarfélagsins. Á fundinum var einnig samþykktur samhljóða ráðningarsamningur við Bjarka Þorsteinsson sem mun gegna starfi sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar næsta kjörtímabil.