Innan við fimmtungur mjög góðs ræktunarlands hér á landi er nýtt til búskapar. Myndin er frá heyskap í Hvítanesi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. mm

Fjallað var um eignarhald á landbúnaðarlandi á málstofu á Hvanneyri

Landbúnaðarháskóla Íslands hélt í vikunni ráðstefnu um eignarhald á landbúnaðarlandi hér á landi. Á málstofunni kynntu Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir nýja skýrslu sem unnin var fyrir LbhÍ. Skýrslan fjallar um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi og þróun regluverks. Einnig er gerður samanburður við önnur Norðurlönd, ESB og Bretland á eignarhaldi landbúnaðarlands. Í skýrslunni eru að auki lagðar fram tillögur um hvernig tryggja megi sjálfbæra nýtingu landbúnaðarlands, fæðuöryggi og byggð í dreifbýli. 

Fjallað var um eignarhald á landbúnaðarlandi á málstofu á Hvanneyri - Skessuhorn