
Varað við tínslu kræklings úr fjöru í Hvalfirði og víðar
Í árlegum vorleiðangri Hafró greindust eiturþörungar í miklu magni í sjósýnum í Faxaflóa og fyrir sunnan landið. Tíðarfar í maí var tiltölulega gott, sérstaklega suðvestanlands og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel. Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling úr fjörum sunnan og suðvestanlands, hvort sem er í Hvalfirði eða öðrum vinsælum stöðum til tínslu kræklinga við landið.
Regluleg vöktun á eiturþörungum í sjó takmarkast við virk ræktunarsvæði. Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum í sjó og þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum kræklings má nálgast á vef Matvælastofnunar.
Svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins, en sumar tegundir mynda þörungaeitur sem er hættulegt mönnum og dýrum. Vöxtur og eiturmyndun í þörungum er ekki fyrirsjáanleg, því getur hættan sprottið upp á gróðurtímabili þörunga, frá mars mánuði og fram á vetur. Skelfiskurinn sem étur eiturþörunga safnar í sig eitrinu án þess að það hafi áhrif á hann sjálfan. Eituráhrifanna gætir aftur á móti hjá þeim sem neyta skelfisks sem hefur safnað upp þörungaeitri. Upplýsingar um eiturþörunga og þörungaeitur má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar.