Fréttir

true

Keppni hélt áfram í Vesturlandsdeildinni

Keppni hélt áfram í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum síðastliðinn þriðjudag. Vegna hvassviðris varð að færa dagskrána til klukkan 21. Keppt var í slaktaumatölti á þessu öðru móti deildarinnar í vetur. Mikið var um glæsilegar sýningar. Sigurvegari kvöldsins var Sindri Sigurðsson á hestinum Glettingi frá Skipaskaga og keppti hann fyrir lið Hergils sem jafnframt stóð uppi sem…Lesa meira

true

Góð afkoma Orkuveitunnar þrátt fyrir ágjöf

Rekstur Orkuveitunnar skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði á árinu 2025. Það er liðlega tveimur milljörðum betri niðurstaða en árið 2024, þrátt fyrir áfall hjá stórum viðskiptavini og samdrátt í tekjum hitaveitunnar. Milli ára jukust þó rekstrartekjur um 2,5% en rekstrargjöld eingöngu um 1,7%. Fjárfestingar ársins 2025 námu samtals 33,4 milljörðum króna en voru 30,9 milljarðar…Lesa meira

true

Grundfirðingar gerðu góða ferð í Kópavoginn

Stelpurnar í blakliði Grundarfjarðar heimsóttu lið HK-U í Digranesi á föstudagskvöldið. Lið Grundarfjarðar sat í 4. sæti 1. deildar fyrir leikinn en HK U var í neðri hluta deildarinnar. Fyrsta hrinan var æsispennandi en liðin skiptust á að leiða framan af. Heimakonur í HK voru svo komnar í vænlega stöðu 24-22 og vantaði bara eitt…Lesa meira

true

Úrskurðarnefnd ógilti bann við hundahaldi

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað á föstudaginn upp úrskurð sem snertir bann við hundahaldi íbúa í Grundahverfi á Akranesi. Í málinu sem um ræðir var tekin fyrir kæra hundeigandans varðandi þá ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 1. desember 2025 að banna viðkomandi að halda hunda í sveitarfélaginu. Krafist var að ákvörðunin yrði felld úr…Lesa meira

true

Árekstur við Laxárbakka

Um klukkan 13 í dag varð árekstur tveggja bifreiða skammt frá Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Vesturlandi, staðfestir í samtali við fréttavef Ríkisútvarpsins að fjórir hafi verið fluttir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Ekki lágu fyrir upplýsingar um líðan fólksins. Veginum var lokað um stund vegna slyssins.Lesa meira

true

Davíð mun leiða lista Framsóknar í Borgarbyggð

Frestur til að skila inn framboðum í leiðtogakjöri hjá Framsóknarflokki í Borgarbyggð rann út á miðnætti sl. föstudagskvöld. Einungis eitt framboð barst, frá Davíð Sigurðssyni formanni byggðarráðs, sem undanfarið kjörtímabil hefur skipað annað sæti listans. Á félagsfundi í Framsóknarfélagi Borgarfjarðar og Mýrasýslu í næstu viku verður borin upp tillaga um að Davíð leiði listann fyrir…Lesa meira

true

Brýnir fyrir hesteigendum að tryggja aðgang að vatni

Guðlaugur Antonsson eftirlitsmaður hjá Matvælastofnun segir að dæmi séu um að útigangshross hafi í frostaköflum að undanförnu ekki haft nægan aðgang að vatni. Hann skrifar til félagsmanna í hmf. Borgfirðingi: „Ágætu félagar, því miður sýnist mér vera að raungerast það sem ég óttaðist. Það er að í einhverjum tilfellum hafi hesteigendur með hross á útigangi…Lesa meira

true

Eyja varð sænskur meistari – er nú í 5. sæti á heimslistanum í fimmþraut

Borgfirska frjálsíþróttakonan Eyja Gautadóttir frá Efri-Hrepp býr og þjálfar í Svíþjóð. Hún gerði sér lítið fyrir nýverið og varð sænskur meistari í langstökki í flokki 17 ára þegar hún stökk 5,72 metra. Að auki keppti hún til bronsverðlauna í þremur öðrum greinum; kúluvarpi, 400 m hlaupi  og 60 metra grindarhlaupi. Nýlega varð hún svo sænskur…Lesa meira

true

Snæfellskonur áttu ekki roð við Aþenu

Snæfell tók í gær á móti Aþenu í leik í 1. deild kvenna í körfubolta. Gestirnir byrjuðu betur og höfðu talverða yfirburði eftir fyrstu tvo leikhlutana; tuttugu stiga munur og markatalan 61-41 í hálfleik. Síðari tvo leikhlutana voru Snæfells konur þó með yfirhöndina, en það dugði engan veginn til. Leikurinn fór því 83-98 fyrir Aþenu.…Lesa meira

true

Víða snjóþekja og hálka á vegum

Nú er þæfingsfæri á Bröttubrekku en snjóþekja og éljagangur á Holtavörðuheiði, víða eru hálka eða hálkubletti. Í hugleiðingum Vegagerðarinnar frá í morgun segir að vetrarfærð er á landinu mest öllu og getur verið þung. „Þrátt fyrir minni vind í dag, sunnudag, en hefur verið síðustu tvo daga heldur áfram að snjóa drjúgt úr éljum og…Lesa meira