Núverandi meirihluti sveitarstjórnar sem tók við 2022. F.v. Davíð, Guðveig, Eðvar, Eva Margrét og Sigrún.

Davíð mun leiða lista Framsóknar í Borgarbyggð

Frestur til að skila inn framboðum í leiðtogakjöri hjá Framsóknarflokki í Borgarbyggð rann út á miðnætti sl. föstudagskvöld. Einungis eitt framboð barst, frá Davíð Sigurðssyni formanni byggðarráðs, sem undanfarið kjörtímabil hefur skipað annað sæti listans. Á félagsfundi í Framsóknarfélagi Borgarfjarðar og Mýrasýslu í næstu viku verður borin upp tillaga um að Davíð leiði listann fyrir kosningarnar 16. maí. Uppstillingarnefnd mun skipa í önnur sæti á listanum.