
Svipmynd nú rétt í þessu úr myndavél Vegagerðarinnar á Bröttubrekku.
Víða snjóþekja og hálka á vegum
Nú er þæfingsfæri á Bröttubrekku en snjóþekja og éljagangur á Holtavörðuheiði, víða eru hálka eða hálkubletti. Í hugleiðingum Vegagerðarinnar frá í morgun segir að vetrarfærð er á landinu mest öllu og getur verið þung. „Þrátt fyrir minni vind í dag, sunnudag, en hefur verið síðustu tvo daga heldur áfram að snjóa drjúgt úr éljum og bökkum víða sem getur viðhaldið erfiðum akstursskilyrðum. Vegfarendur er hvattir til að fara varlega og kynna sér akstursskilyrði og umferð fyrir ferðalög.“