
Úrskurðarnefnd ógilti bann við hundahaldi
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað á föstudaginn upp úrskurð sem snertir bann við hundahaldi íbúa í Grundahverfi á Akranesi. Í málinu sem um ræðir var tekin fyrir kæra hundeigandans varðandi þá ákvörðun skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 1. desember 2025 að banna viðkomandi að halda hunda í sveitarfélaginu. Krafist var að ákvörðunin yrði felld úr gildi. Til vara var þess óskað að ákvörðunin yrði endurskoðuð svo hún verði minna íþyngjandi fyrir kæranda, svo sem með því að hundahald verði bundið skilyrðum um að hluti hundanna verði geltir. Ákvörðun nefndarinnar var að fella hina kærðu ákvörðun Akraneskaupstaðar úr gildi.