
Eyja varð sænskur meistari – er nú í 5. sæti á heimslistanum í fimmþraut
Borgfirska frjálsíþróttakonan Eyja Gautadóttir frá Efri-Hrepp býr og þjálfar í Svíþjóð. Hún gerði sér lítið fyrir nýverið og varð sænskur meistari í langstökki í flokki 17 ára þegar hún stökk 7,52 metra. Að auki keppti hún til bronsverðlauna í þremur öðrum greinum; kúluvarpi, 400 m hlaupi og 60 metra grindarhlaupi. Nýlega varð hún svo sænskur meistari í fimmþraut innanhúss, fékk gull í fjórum af fimm greinum sem hún keppti í. Samanlagður stigafjöldi þýðir að hún er nú í fimmta sæti á heimslistanum í sínum aldursflokki. Eyja æfir og keppir með unglingalandsliði Svía í frjálsum.
