
Verðlaunaafhending í einstaklingskeppni. Ljósm. iss
Keppni hélt áfram í Vesturlandsdeildinni
Keppni hélt áfram í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum síðastliðinn þriðjudag. Vegna hvassviðris varð að færa dagskrána til klukkan 21. Keppt var í slaktaumatölti á þessu öðru móti deildarinnar í vetur. Mikið var um glæsilegar sýningar. Sigurvegari kvöldsins var Sindri Sigurðsson á hestinum Glettingi frá Skipaskaga og keppti hann fyrir lið Hergils sem jafnframt stóð uppi sem sigurvegari liðakeppninnar.