Góð afkoma Orkuveitunnar þrátt fyrir ágjöf

Rekstur Orkuveitunnar skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði á árinu 2025. Það er liðlega tveimur milljörðum betri niðurstaða en árið 2024, þrátt fyrir áfall hjá stórum viðskiptavini og samdrátt í tekjum hitaveitunnar. Milli ára jukust þó rekstrartekjur um 2,5% en rekstrargjöld eingöngu um 1,7%. Fjárfestingar ársins 2025 námu samtals 33,4 milljörðum króna en voru 30,9 milljarðar 2024. Ársreikningur samstæðu Orkuveitunnar var samþykktur af stjórn í síðustu viku. Innan hennar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix. Áður höfðu ársreikningar dótturfélaga verið samþykktir af viðkomandi stjórnum.