
Klukkan 10:47 í morgun fékk Slökkvilið Borgarbyggðar útkall vegna sinuelds við bæinn Álftártungu á Mýrum. Í upphafi voru allar þrjár starfsstöðvar slökkviliðsins kallaðar út en síðar voru afturkölluð viðbrögð frá stöðvunum á Hvanneyri og í Reykholti. Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri sagði í samtal við Skessuhorn að eldur hafi logað í gróðri nærri íbúðarhúsinu á bænum.…Lesa meira








