Sluppu með skrekkinn úr bílveltu

Um klukkan 13 í dag varð bílvelta vestan við Grundarfjörð á Snæfellsnesi, skammt frá afleggjaranum að Kvíabryggju. Sjúkrabíll og björgunarliðar fóru á vettvang. Fernt var í bílnum og sluppu allir án meiðsla. Aðstæður voru góðar til aksturs, vegurinn auður og hálkulaus. Bíllinn er illa farinn og líklega ónýtur. Meðfylgjandi mynd af vettvangi sendi vegfarandi Skessuhorni.

Sluppu með skrekkinn úr bílveltu - Skessuhorn