Mynd frá fyrri borunum á svæðinu. Ljósm. gj

Vinna við jarðhitarannsóknir heldur áfram við Borg

Verkfræðistofan Cowi Ísland ehf. hefur óskað eftir um framkvæmdaleyfi til jarðgrunns könnunar í landi Borgar á Mýrum, nánar tiltekið suður af bænum, á túni eyðibýlisins Suðurríkis. Fyrirhugað er að gera vegslóða og grafa fjórar holur, allt að fjögurra metra djúpar, með beltagröfu til þess að fá gott snið af jarðlögum. Að skrásetningu jarðlaganna lokinni verður efninu skilað aftur í holurnar og gengið frá öllu raski. Framkvæmdin er grunnrannsókn fyrir tilraunaborunum eftir heitu vatni á vegum Veitna. Landið er skilgreint opið svæði í endurskoðuðu aðalskipulagi Borgarbyggðar. Tekið er fram að heimild landeiganda liggi fyrir. Skipulagsfulltrúi, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, telur að ofangreind framkvæmd falli ekki undir framkvæmdaleyfi, en vill þó ítreka að framkvæmdaraðili skuli gæta ýtrustu varúðar með tilliti til staðsetningar framkvæmdarinnar þ.e. nálægðar við Snæfellsnesveg og Borgarvog. Öllu raski skuli haldið í lágmarki og frágangur vera með þeim hætti að ummerki verði lágmörkuð.