Verðlaunaafhending í unglingaflokki. Ljósm. Eiðfaxi

Góð þátttaka á fyrsta KB mótinu

Fyrsta mótið í KB-mótaröðinni í hestaíþróttum fór fram á laugardaginn. Kaupfélag Borgfirðinga er sem fyrr bakhjarl mótaraðarinnar. Um er að ræða bæði einstaklings- og liðakeppni en að þessu sinni keppa fimm lið. Það eru lið Grillhússins, Fjöllan, Hvítárliðið, Skjólbrekka – Berg og Co og Dreyrafákar. Þrjú mót eru á dagskrá í vetur þegar keppt eru í fjórgangi, gæðingaskeiði og tölti.