Fréttir

true

Kólnar til muna næstu daga

Næstu daga er spáð mjög köldu veðri um landið og inn til landsins verður víða grimmdarfrost, upp undir 30 gráður á jöklum og hálendinu. Norðlæg átt verður ríkjandi næstu daga og víða él, einkum þó um norðan- og austanvert landið. Um vestanvert landið mun hanga þurrt en á mánudaginn er spáð norðlægri eða breytilegri átt…Lesa meira

true

Skipuleggja hlaup yfir Kerlingarskarð

Kerlingaskarðshlaupið er á döfinni 23. maí næstkomandi. Er þetta í annað skipti sem það verður hlaupið. Í rafrænu tíðindariti Sveitarfélagsins Stykkishólms, Helstu fréttum, er sagt frá þessu 14 kílómetra utanvegahlaupi sem fer um malarslóða á Kerlingarskarði. „Leiðin tengir saman suður- og norðurhluta Snæfellsness og býður upp stórbrotna náttúru í Kerlingarskarði. Hlaupið hefst á norðanverðu nesinu,…Lesa meira

true

52 þúsund Íslendingar eru búsettir erlendis

Alls voru 51.853 íslenskir ríkisborgarar með skráð lögheimili erlendis 1. desember síðastliðinn. Flestir voru skráðir í Danmörku, eða 12.786 einstaklingar. Næst flestir eða 9.348 voru skráðir í Noregi og í þriðja sæti var Svíþjóð þar sem 9.229 íslenskir ríkisborgarar voru skráðir með lögheimili. 61,7% íslenskra ríkisborgara, sem eru með skráð lögheimili erlendis, eru á Norðurlöndunum.…Lesa meira

true

Ólína Þorvarðardóttir er staðgengill rektors

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, hefur tekið við sem settur rektor skólans. Hún mun gegna starfinu tímabundið á meðan unnið er að ráðningu nýs rektors, í kjölfar þess að dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík lét af störfum. Ólína hefur gegnt stöðu deildarforseta félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst frá 2022 og verið staðgengill…Lesa meira

true

Klætt yfir sjótanka Norðursalts

Þessa dagana er verið að klæða viðbyggingu á verksmiðjuhúsi Norðursalts á Reykhólum. Þetta kemur fram á vef Reykhólahrepps. Um límtréshús er að ræða, klætt með yleiningum. Það er um níu metra hátt og er tæplega 90 fm að grunnfleti. Þarna er verið að byggja yfir sjótanka verksmiðjunnar, en með því vinnst að hitastig í þeim…Lesa meira

true

Hestaland efst eftir fyrstu keppni vetrarins

Fyrsta mótið af fjórum í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í gær. Keppt var í fjórgngi V1. 26 keppendur voru skráðir til leiks en mótið er bæði einstaklings- og liðakeppni. Í liðakeppninni stendur lið Hestalands efst eftir kvöldið með 50 stig og í 2. sæti er lið Bergs með 40,5 stig. Hæstir í…Lesa meira

true

Vesturland situr eftir í fjárveitingum til stofnvega

Í umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, vegna Samgönguáætlunar, eru býsna harðorðar athugasemdir gerðar vegna áætlaðra framlaga til stofnvega á landinu. „Stjórn SSV gerir alvarlegar athugasemdir við fjárveitingar til nýframkvæmda við stofnvegi á Vesturlandi. Enn og aftur eru fjárveitingar til Vesturlands mun lægri en til annarra landshluta utan höfuðborgarsvæðisins þrátt…Lesa meira

true

Varmadælur verða settar í Ólafsvíkurkirkju

Ákveðið hefur verið að setja upp tvær varmadælur til að kynda upp Ólafsvíkurkirkju. Í bæjarblaðinu Jökli er sagt frá þessu, en sóknarnefnd óskar þar eftir stuðningi svo fjármagna megi framkvæmdina. „Núverandi rafmagnsofnar eru orðnir gamlir, orkufrekir og hafa leitt til verulegrar hækkunar á rafmagnskostnaði. Því miður er afgangur af rekstri kirkjunnar ekki nægur til að…Lesa meira

true

SSV lýsir andstöðu við hugmyndir um gjaldtöku í gömlu göngin

Nýverið sendu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi inn ítarlega umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna Samgönguáætlunar. Ríkisstjórnin hefur meðal annars kynnt hugmynd sína um stofnun innviðafélags sem hefði þann tilgang að koma á nýju skipulagi fjármögnunar við framkvæmd stórra samgöngumannvirkja. SSV mótmælir því að hefja að nýju gjaldtöku í Hvalfjarðargöng: „Stjórn SSV lýsir yfir andstöðu…Lesa meira

true

Nýtt sveitabakarí á Snæfellsnesi

Björtubrauð er gómsæt nýsköpun í atvinnuflóru Snæfellinga Athafnakonan Guðný Heiðbjört Jakobsdóttir býr í Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík ásamt manni sínum Guðjóni Jóhannessyni. Hún hefur nú stofnað bakaríið Björtubrauð og sérhæfir sig í að baka úr súrdeigi. „Það er ekki nema ár síðan að hugmyndin kviknaði,“ segir Guðný í samtali við Skessuhorn. „Ég hafði verið að horfa…Lesa meira