Ólafsvíkurkirkja. Ljósm. úr safni/af

Varmadælur verða settar í Ólafsvíkurkirkju

Ákveðið hefur verið að setja upp tvær varmadælur til að kynda upp Ólafsvíkurkirkju. Í bæjarblaðinu Jökli er sagt frá þessu, en sóknarnefnd óskar þar eftir stuðningi svo fjármagna megi framkvæmdina. „Núverandi rafmagnsofnar eru orðnir gamlir, orkufrekir og hafa leitt til verulegrar hækkunar á rafmagnskostnaði. Því miður er afgangur af rekstri kirkjunnar ekki nægur til að standa straum af þessari framkvæmd. Áætlaður kostnaður við uppsetningu varmadælanna er 1,3 milljónir króna,“ segir í tilkynningu frá sóknarnefnd.