
Lið Hestalands á verðlaunapalli. Ljósm. iss
Hestaland efst eftir fyrstu keppni vetrarins
Fyrsta mótið af fjórum í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í gær. Keppt var í fjórgngi V1. 26 keppendur voru skráðir til leiks en mótið er bæði einstaklings- og liðakeppni. Í liðakeppninni stendur lið Hestalands efst eftir kvöldið með 50 stig og í 2. sæti er lið Bergs með 40,5 stig.