
Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn
SSV lýsir andstöðu við hugmyndir um gjaldtöku í gömlu göngin
Nýverið sendu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi inn ítarlega umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna Samgönguáætlunar. Ríkisstjórnin hefur meðal annars kynnt hugmynd sína um stofnun innviðafélags sem hefði þann tilgang að koma á nýju skipulagi fjármögnunar við framkvæmd stórra samgöngumannvirkja. SSV mótmælir því að hefja að nýju gjaldtöku í Hvalfjarðargöng: „Stjórn SSV lýsir yfir andstöðu við þær hugmyndir að nýtt innviðafélag muni fjármagna framkvæmdir sínar með því að leggja veggjöld á mannvirki eins og Hvalfjarðargöng sem voru á sínum tíma fjármögnuð með veggjöldum. Að hefja aftur gjaldtöku af mannvirkjum sem eru að fullu upp greidd, er ekki skynsamlega aðgerð og í raun óásættanleg.“