
Kuldaspá Veðurstofunnar um miðnætti á föstudagskvöld.
Kólnar til muna næstu daga
Næstu daga er spáð mjög köldu veðri um landið og inn til landsins verður víða grimmdarfrost, upp undir 30 gráður á jöklum og hálendinu. Norðlæg átt verður ríkjandi næstu daga og víða él, einkum þó um norðan- og austanvert landið. Um vestanvert landið mun hanga þurrt en á mánudaginn er spáð norðlægri eða breytilegri átt og éljum, en þurrt að mestu sunnanlands. Líkur á snjókomu vestantil um kvöldið. Áfram kalt í veðri. Á þriðjudag verður breytileg átt og snjókoma með köflum en um leið dregur úr frosti. Á miðvikudagskvöld er svo spáð snjókomu víða um land.