52 þúsund Íslendingar eru búsettir erlendis

Alls voru 51.853 íslenskir ríkisborgarar með skráð lögheimili erlendis 1. desember síðastliðinn. Flestir voru skráðir í Danmörku, eða 12.786 einstaklingar. Næst flestir eða 9.348 voru skráðir í Noregi og í þriðja sæti var Svíþjóð þar sem 9.229 íslenskir ríkisborgarar voru skráðir með lögheimili. 61,7% íslenskra ríkisborgara, sem eru með skráð lögheimili erlendis, eru á Norðurlöndunum. Í fjórða og fimmt sæti yfir búsetulönd eru Bandaríkin og Bretland. Íslenskir ríkisborgarar voru á þessum tímapunkti með skráð lögheimili í 111 löndum af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.