Fyrstu hlauparar skila sér yfir marklínu í Kerlingarskarðshlaupinu á síðasta ári þegar hlaupið fór fram í fyrsta skipti. Ljósm. Helstu fréttir.

Skipuleggja hlaup yfir Kerlingarskarð

Kerlingaskarðshlaupið er á döfinni 23. maí næstkomandi. Er þetta í annað skipti sem það verður hlaupið. Í rafrænu tíðindariti Sveitarfélagsins Stykkishólms, Helstu fréttum, er sagt frá þessu 14 kílómetra utanvegahlaupi sem fer um malarslóða á Kerlingarskarði. „Leiðin tengir saman suður- og norðurhluta Snæfellsness og býður upp stórbrotna náttúru í Kerlingarskarði. Hlaupið hefst á norðanverðu nesinu, við afleggjarann að Kerlingarskarði, og lýkur á sunnanverðu nesinu. Gert er ráð fyrir rútuferðum frá Stykkishólmi að rásmarki, einni til tveimur drykkjarstöðvum á leiðinni og verðlaunum fyrir fyrstu þrjú sætin.“