Ólína Þorvarðardóttir settur rektor Háskólans á Bifröst.

Ólína Þorvarðardóttir er staðgengill rektors

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, hefur tekið við sem settur rektor skólans. Hún mun gegna starfinu tímabundið á meðan unnið er að ráðningu nýs rektors, í kjölfar þess að dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík lét af störfum. Ólína hefur gegnt stöðu deildarforseta félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst frá 2022 og verið staðgengill rektors frá 2023. „Á þeim tíma hefur félagsvísindadeild eflst verulega, námsframboð hefur verið aukið og nemendum fjölgað í takt við þá þróun,“ segir í tilkynningu frá skólanum.