
Malbikað á Bröttubrekku. Ljósm. Vegagerðin
Vesturland situr eftir í fjárveitingum til stofnvega
Í umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, vegna Samgönguáætlunar, eru býsna harðorðar athugasemdir gerðar vegna áætlaðra framlaga til stofnvega á landinu. „Stjórn SSV gerir alvarlegar athugasemdir við fjárveitingar til nýframkvæmda við stofnvegi á Vesturlandi. Enn og aftur eru fjárveitingar til Vesturlands mun lægri en til annarra landshluta utan höfuðborgarsvæðisins þrátt fyrir brýna framkvæmdaþörf. Því veldur það stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi miklum vonbrigðum að aðeins er áætlað að verja 2.400 m.kr. til nýframkvæmda við stofnvegi á Vesturlandi á næstu fimm árum eða mun lægri upphæð en í öðrum landshlutum.“