
Eftir þrjá tapleiki í röð í Bestu deild karla í knattspyrnu náðu Skagamenn sigri á ný í gær þegar þeir mættu Íslandsmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli. Leikurinn fór ágætlega af stað og liðin skiptust á að sækja. Fyrsta færi leiksins kom eftir rúmlega korters leik þegar Blikinn Kristófer Ingi Kristinsson átti skalla í þverslá Skagamanna…Lesa meira








