Fréttir

true

Garðfuglahelgin er framundan

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi að vetri, að þessu sinni dagana 23.-26. janúar. Almenningur er hvattur til þátttöku. „Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er…Lesa meira

true

Um launakjör bæjarfulltrúa

Í síðustu viku birtust á miðlum Skessuhorns svör við fyrirpurn um launakjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum sex af sjö stærstu sveitarfélanna á Vesturlandi. Einungis vantaði upplýsingar frá Akraneskaupstað sem nú hafa borist. Framundan eru kosningar til sveitarstjórna. Undirbúningur flokka og framboða er nú hafinn og sitjandi sveitarstjórnarfólk að velta því fyrir sér hvort það gefi…Lesa meira

true

Síkvikt umferðareftirlit

Í vikunni sem leið voru 29 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 381 ökumaður að auki var myndaður við hraðakstur af myndavélabifreið embættisins. Níu voru kærðir fyrir að nota farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað. Nokkra þeirra stöðvaði lögregla við eftirlit og einhverjir þeirra voru…Lesa meira

true

Úrskurðarnefnd hafnar frestun á banni við hundahaldi

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu um frestun ákvörðunar Akraneskaupstaðar um að banna íbúa í sveitarfélaginu að halda hunda á heimili sínu. Íbúanum hafði verið gert að fjarlægja hunda af heimili innan eins mánaðar. Forsaga málsins er sú að 8. ágúst í fyrra sluppu fjórir hundar í eigu kæranda út af heimili hans og…Lesa meira

true

LV mótmælir frumvarpi ráðherra um lagareldi

Stjórn Landssambands veiðifélaga (LV) hélt síðastliðinn föstudag fund með formönnum og öðrum fulltrúum veiðifélaga. Í ályktun frá fundinum er lýst miklum vonbrigðum með frumvarp atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi sem nú liggur fyrir í samráðsgátt stjórnvalda. „Vonir stóðu til þess að nýtt frumvarp yrði raunveruleg framför frá fyrri frumvörpum og myndi draga úr áhættu fyrir…Lesa meira

true

Stykkishólmur fær úthlutað byggðakvóta

Innviðaráðuneytið hefur nú birt í heild sinni heildarúthlutum byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026. Í fréttum Skessuhorns að undanförnu hefur komið fram úthlutun til Ólafsvíkur og Grundarfjarðar. Auk þeirra byggðarlaga hefur Stykkishólmur einnig fengið úthlutað byggðakvóta. Úthlutunin er 50 þorskígildistonn og að auki eru 0,833 þorskígildistonn ónýtt frá fyrra fiskveiðiári. Þessi úthlutun byggðakvóta er til ráðstöfunar til minni…Lesa meira

true

Ótilgreindum í hús fjölgar jafnt og þétt

Þeim íbúum sem eiga lögheimili í sveitarfélögum án þess að vera tilgreindir í ákveðið hús hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra á Alþingi við fyrirspurn Vilhjálms Árnasonar þingmanns Sjálfstæðsflokksins um skráningu lögheimilis. Í fyrirspurninni óskar þingmaðurinn eftir upplýsingum um hversu margir íbúar séu skráðir til lögheimilis í…Lesa meira

true

Fiskistofa úthlutar kvóta til sjóstangveiðifélaga

Fiskistofa hefur úthlutað vilyrðum um aflakvóta til félaga sem sóttu um slíkt í samræmi við skráningu afla á opinberum sjóstangveiðimótum á fiskveiðiárinu 2025/2026. Samtals var veitt 200 þorskígildistonnum til tíu félaga en yfirleitt heldur hvert félag tvö mót á ári. Tvö félaganna eru á Vesturlandi. Sjóstangveiðifélag Snæfellsness fékk úthlutað 26 þorskígildistonnum og Sjóstangveiðifélagið Skipaskagi fékk…Lesa meira

true

Gjaldskrá vatnsveitu tekur mið af tegund búfénaðar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ákveðið að tillögu stjórnar Vatnsveitu Hraunhrepps að hækka gjaldskrá veitunnar um 20% frá og með nýliðnum áramótum. Hraunhreppur var hreppur vestast í Mýrasýslu og var eitt þeirra sveitarfélaga er 11. júní 1994 sameinuðust í Borgarbyggð. Hin sveitarfélögin voru Borgarnesbær, Norðurárdalshreppur og Stafholtstungnahreppur. Í Hraunhreppi hinum forna er rekin vatnsveita sem enn ber…Lesa meira

true

48 ára aldursmunur á elsta og yngsta leikmanninum

Lið Grundarfjarðar í meistaraflokki kvenna í blaki lagði land undir fót um liðna helgi til að spila við lið Sindra frá Höfn í Hornafirði. Lagt var af stað á föstudaginn en leikurinn sjálfur var svo spilaður á laugardag. Lið Grundarfjarðar var þunnskipað og vantaði nokkra leikmenn. Af þeim sökum ferðaðist hin 12 ára gamla Ellen…Lesa meira