Gráþröstur. Ljósm. Örn Óskars

Garðfuglahelgin er framundan

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi að vetri, að þessu sinni dagana 23.-26. janúar. Almenningur er hvattur til þátttöku. „Gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma yfir tiltekna helgi. Skrá hjá sér hvaða fugla viðkomandi sér og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir,“ segir í tilkynningu frá Fuglavernd.

Skilafrestur niðurstöðu í talningunni er til og með 15. febrúar 2026. Skráning niðurstaðna: „Þú getur valið þá leið sem þér hentar best til að skrá niðurstöðurnar að lokinni athuguninni. Við mælum með rafrænni skráningu, þar sem gögnin eru þá slegin inn og fara beint í gagnagrunn þar sem hægt er að vinna úr niðurstöðunum. frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Fuglaverndar: https://fuglavernd.is/tegundavernd/gardfuglar/gardfuglahelgi/

Fuglavernd hvetur alla sem hafa snefil af áhuga á fuglum að taka þátt.“