Fréttir

true

Tvennir tónleikar hjá sjötugum Tónlistarskóla Akraness

Tónlistarskóli Akraness heldur upp á 70 ára afmæli með tvennum tónleikum í Tónbergi föstudaginn 21. nóvember; klukkan 17 og 20. Miðasala fer fram í skólanum og á Midix.is. „Á tónleikunum mun fjölmennur hópur nemenda og kennara stíga á svið; bæði einsöngvarar og hljóðfæraleikarar af öllum gerðum. Á dagskránni verður sérstakt Skagaþema, þar sem meðal annars…Lesa meira

true

Þriggja ára verndartollar ESB á Ísland og Noreg

Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í morgun tillögu um þriggja ára verndartolla á innflutt járnblendi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Bæði íslensk og norsk stjórnvöld lögðu fast að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að veita undanþágu þar sem þau eru í nánum tengslum í gegnum EES-samninginn. Verndartollunum er lýst sem „mikilvægu skrefi“ til að vernda evrópskan járnblendiiðnað, segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Skammt stórra högga á milli hjá UMFG

Kvennalið Ungmennafélag Grundarfjarðar í blaki hefur staðið í ströngu undanfarna daga. Mjög þétt hefur verið spilað í vetur og hefur liðið spilað tvo leiki síðan um miðja síðustu viku. Miðvikudaginn 12. nóvember tóku stelpurnar á móti liði HK-U20 sem er skipað ungum og efnilegum leikmönnum HK. Leikurinn var nokkuð jafn þó að lið UMFG hafi…Lesa meira

true

Lítilsháttar hagnaður áætlaður í Dalabyggð

Fjárhagsáætlun A og B hluta Dalabyggðar fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að rekstrarafkoma ársins verði jákvæð um 8,5 milljónir króna sem er um 0,7% af tekjum. Fyrri umræða um fjárhagsáætlunina fór fram í sveitarstjórn í síðustu viku. Tekjur Dalabyggðar á næsta ári eru áætlaðar 1.232 milljónir króna. Þar af vega þyngst útsvar og fasteignaskattar…Lesa meira

true

Afkoma Akraneskaupstaðar gerir ráð fyrir lítilsháttar hagnaði

Fjárhagsáætlun A og B hluta Akraneskaupstaðar fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að rekstrarafkoma ársins verði jákvæð um tæpar 196,7 milljónir króna sem er tæplega 1,3% af tekjum. Þetta kom fram á fundi bæjarstjórnar á dögunum þegar fram fór fyrri umræða um fjárhagsáætlunina. Gert er ráð fyrir að tekjur bæjarfélagsins og stofnana þess verði tæplega…Lesa meira

true

Ráðstefna lykilfólks í barnamenningu var haldin á Akranesi

Fimmtudaginn 13. nóvember fór fram ráðstefnan „Öll börn með“ í Frístundamiðstöðinni Garðavöllum á Akranesi. Hún var ætluð stjórnendum og listafólki sem sinna menningarstarfi barna á landinu öllu og var unnin í samvinnu Listar fyrir alla, í umboði menningar,- nýsköpunar og háskólamálaráðuneytisins, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og Akraneskaupstaðar. Ráðstefnan var lokahnykkur í barnamenningarhátíðinni Barnó – Best…Lesa meira

true

Árlegt Jólabingó Kvenfélagsins 19. júní er framundan

Hið sívinsæla jólabingó Kvenfélagsins 19. júní í Borgarfirði fer fram í sal LbhÍ á Hvanneyri fimmtudaginn 20. nóvember klukkan 19:30. Þessi viðburður hefur nú verið haldinn nánast árlega í rúm 50 ár og alltaf notið mikilla vinsælda. Kvenfélagið 19. júní er nú fjölmennasta kvenfélag í Borgarfirði en í því eru um 50 konur á öllum…Lesa meira

true

Breytingar á fjármögnun HVE í farvatninu

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að ná samningum við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um þjónustutengda fjármögnun þeirrar sjúkrahússþjónustu stofnunarinnar sem fram fer á Akranesi. Slík fjármögnun hefur verið við líði við Landsspítalann og Sjúkrahúsið á Akureyri og að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneyti heilbrigðismála er góð reynsla af þeirri tilhögun. Í…Lesa meira

true

Atvinnuleitendur frá desemberuppbót

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Rétt á fullri desemberuppbót eiga þau sem staðfesta atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember og hafa verið að fullu tryggð innan atvinnuleysistryggingakerfisins í samtals tíu mánuði eða lengur árið 2025. Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt innan…Lesa meira

true

Blóði safnað á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Stillholt 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 18. nóvember kl. 10:00 – 17:00. Allir sem mega gefa blóð eru hvattir til að mæta – blóðgjöf er lífgjöf!Lesa meira