Fréttir

true

Faxaflóasund var þreytt í gær

Sundfólk í Sundfélagi Akraness synti í gær árlegt Faxaflósund við Langasand. Um áheitasund er að ræða til styrktar sundfélaginu. Synt var 21 kílómetra leið meðfram Langasandi í ágætu veðri. Hver sundmaður synti í um 30 mínútur í sjónum, sem samsvarar um tveggja til tveggja og hálfs kílómeters sundi. Að endingu var slakað á í heita…Lesa meira

true

Sýna gamlar filmur úr safni í Stykkishólmi

Kvikmyndasafn Íslands og Amtsbókasafnið í Stykkishólmi bjóða upp á kvikmyndasýningu föstudaginn 19. september klukkan 17:00. Á sýningunni verður sýnt myndefni frá Stykkishólmi og nágrenni. Meðal annars sjást forsetaheimsóknir Sveins Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar í bæinn, fermingarbörn, líf og leikir í kringum sjómannadaginn og fiskvinnsla á höfninni. Myndefnið er allt frá því um og eftir miðja…Lesa meira

true

„Til heiðarinnar hjartað slær“ – Dagur íslenskrar náttúru

Dagur íslenskrar náttúru er í dag. Hann var stofnaður þann 16. september árið 2010 af ríkisstjórn Íslands að tillögu Svandísar Svavarsdóttur þáverandi umhverfisráðherra og haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn haustið eftir. Dagurinn er fæðingardagur hins landsþekkta náttúruvinar Ómars Ragnarssonar sem fagnar nú sínum 85. afmælisdegi. Var það gert til heiðurs því mikla starfi sem Ómar…Lesa meira

true

Góð þátttaka í Gulum september

Gulur september er vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir og af því tilefni eru margskonar viðburðir því tengdir í mánuðinum. Miðvikudaginn 10. september voru allir hvattir til að klæðast gulu og bjóða upp á gular veitingar. Kennarar og nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði létu ekki sitt eftir liggja og einnig var gult þema á æfingu…Lesa meira

true

Sigur í lokaleik fyrri hluta mótsins

Karlalið ÍA tók síðdegis í dag á móti Aftureldingu í sínum síðasta leik í fyrri hluta Bestu deildarinnar. Var þetta viðureign botnliðanna. Gestirnir úr Mosfellsbæ byrjuðu leikinn betur og komust nálægt því að skora á upphafsmínútunum, ef ekki hefði komið til glæsilegar markvörslur Árna Marinós Einarssonar. Afturelding var sterkari aðilinn lengsta hluta fyrri hálfleiks en…Lesa meira

true

Bleika slaufan fær hverja krónu af uppboði á bleikri gröfu

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér,“ segir Arnar Logi Ólafsson Hólm, framkvæmdastjóri Ljárdals, fyrirtækis sem sérhæfir sig í sölu á alls konar vinnuvélum, m.a. smærri gröfum. „Þegar ég var að leita leiða til að gefa til baka eftir góða byrjun hjá fyrirtækinu fæddist sú hugmynd að sérpanta fagurbleika gröfu frá framleiðandanum okkar og bjóða…Lesa meira

true

Lágur þrýstingur á heita vatninu á miðvikudag

Miðvikudaginn 17. september munu Veitur vinna við tengingu á nýrri aðveitulögn fyrir hitaveituna við Hafnarfjall. Vinna hefst kl. 07.00 að morgni og áætluð verklok eru um kl. 03:00 aðfararnótt fimmtudagsins. Þrýstingur á heitu vatni verður því lægri en venjulega á þessu tímabili. „Notendur eru hvattir til að spara heita vatnið á umræddu tímabili. Við biðjumst…Lesa meira

true

Starf briddsfélagsins hefst eftir hálfan mánuð

Hefð er fyrir því að forkólfar í Bridgefélagi Borgarfjarðar ákveði upphaf starfsveturs félagsins á örstuttum fundi undir réttarvegg. Ekki brást það nú og segja þeir Jón Eyjólfsson og Ingimundur Jónsson að komið verði saman við spilaborðið í Logalandi mánudagskvöldið 29. september klukkan 19:30 stundvíslega. Eins og fyrr eru allir áhugasamir spilarar velkomnir og starfssvæðið engan…Lesa meira

true

Oddur jöklafræðingur hlaut viðurkenningu Sigríðar í Brattholti

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, veitti í dag Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Afhendingin fór fram á Umhverfisþingi sem nú stendur yfir í Hörpu. Viðurkenninguna hlaut jarð- og jöklafræðingurinn Oddur Sigurðsson. Í tilkynningu segir að Oddur hefur helgað líf sitt rannsóknum og fræðslu varðandi íslenska jökla og breytingar á þeim vegna hlýnandi loftslags. „Það…Lesa meira

true

Opnað fyrir umsóknir í Nýsköpunarsjóðinn Kríu

Nýsköpunarsjóðurinn Kría (NSK) hefur opnað fyrir umsóknir í nýtt fjárfestingaátak sem miðar að því að fjárfesta í sprotafyrirtækjum snemma á þróunarferli þeirra. „Viðskiptahugmyndin sem félagið byggir á þarf að vera vænleg til vaxtar og útflutnings, félagið íslenskt og með starfsemi á Íslandi. Þá er það til framdráttar að lykilteymi félagsins skipi fjölbreyttur hópur með bakgrunn,…Lesa meira