Íþróttir

Faxaflóasund var þreytt í gær

Sundfólk í Sundfélagi Akraness synti í gær árlegt Faxaflósund við Langasand. Um áheitasund er að ræða til styrktar sundfélaginu. Synt var 21 kílómetra leið meðfram Langasandi í ágætu veðri. Hver sundmaður synti í um 30 mínútur í sjónum, sem samsvarar um tveggja til tveggja og hálfs kílómeters sundi. Að endingu var slakað á í heita pottinum Guðlaugu.

„Sundfélagið þakkar öllum sem lögðu verkefninu lið en minnir á reikning félagsins: 0186-15-376670. Kt. 630269-4239.“