Fréttir

Lágur þrýstingur á heita vatninu á miðvikudag

Miðvikudaginn 17. september munu Veitur vinna við tengingu á nýrri aðveitulögn fyrir hitaveituna við Hafnarfjall. Vinna hefst kl. 07.00 að morgni og áætluð verklok eru um kl. 03:00 aðfararnótt fimmtudagsins. Þrýstingur á heitu vatni verður því lægri en venjulega á þessu tímabili.

„Notendur eru hvattir til að spara heita vatnið á umræddu tímabili. Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. Í kuldatíð mælum við með að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur. Við bendum húseigendum á að huga að sínum innanhússkerfum,“ segir í tilkynningu frá Veitum.