Fréttir

true

Björgunarskipið Björg í gegnum ýmsar prófanir

Nýjasta björgunarskip flotans, sem fær nafnið Björg og verður gert út af Lífsbjörgu í Rifi, hefur síðustu daga farið í gegnum prófanir og úttektarferli í Finnlandi. Fulltrúar Landsbjargar hafa verið um borð í ýmsum úttektum fyrir afhendingu sem verður á næstu vikum. Skipið hefur staðist allar væntingar sem gerðar eru til þess a og mun…Lesa meira

true

Líf og fjör á Icefish 2024 – Myndasyrpa

Íslenska sjávarútvegssýningin er haldin þessa dagana í Fífunni í Kópavogi en hún hófst á miðvikudaginn og lýkur seinni partinn í dag. Sýningin er sú fjórtánda í röðinni og er elsta alþjóðlega sjávarútvegssýningin á Íslandi. Hún var fyrst haldin árið 1984 og hefur þróast í fjölbreytta vöru- og þjónustusýningu sem tekur á öllum þáttum atvinnugreinarinnar. Meðal…Lesa meira

true

Fyrsta raðhúsið af þremur að rísa á Reykhólum

Starfsmenn Tekta ehf. eru þessa dagana að reisa nýtt fjögurra íbúða raðhús á Reykhólum. Þeir hófust handa í vikunni og komin er upp önnur hliðin, allir skilveggir milli íbúða, hálfir gaflarnir og fyrsta einingin í seinni hliðina. Stefnt er að því að húsið verði komið undir þak um helgina. Það er Tekta ehf. í Borgarnesi…Lesa meira

true

Við erum mjög sátt með sumarið

Rætt við Skarphéðin Magnússon þjálfara kvennaliðs ÍA ÍA varð í 5. sæti í Lengjudeild kvenna í sumar. Fengu þær 26 stig úr 18 leikjum og markatalan var 27:31. ÍA vann átta leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði átta. Skagakonur léku í fyrsta skipti í Lengjudeildinni síðan árið 2021 þegar þær féllu niður ásamt Gróttu. Skarphéðinn…Lesa meira

true

Við ætlum að spyrna okkur upp af botninum

Rætt við Jón Theodór Jónsson framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Skallagríms Veturinn hjá meistaraflokki karla í Skallagrími fór seint af stað. „Þjálfararáðningin gekk hægt fyrir sig þannig að við vissum að við værum að fara seint af stað. Æfingar hjá meistaraflokki Skallagríms geta ekki farið fram í Borgarnesi yfir veturinn þar sem hér er engin aðstaða. Flokkurinn hefur…Lesa meira

true

Ljósleiðaravæðingu verður að mestu lokið fyrir 2027

Búið er að rita undir samninga fjarskiptasjóðs ríkisins við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Af þessum 25 sveitarfélögum eru í þeim hópi Borgarbyggð, Grundarfjarðarbær, Reykhólahreppur, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund lögheimili í þéttbýli um land allt munu eiga kost á…Lesa meira

true

Fjallað verður um álagsstýringu á ferðamannastöðum

Ferðaþjónustudagurinn 2024 fer fram í Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík mánudaginn 7. október. Þar verður fjallað um álagsstýringu á fjölsóttum ferðamannastöðum út frá ýmsum hliðum. Sjónum verður beint að áskorunum og reynslu af álagsstýringu á áfangastöðum hér á landi sem erlendis og nauðsynlegu samtali stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um viðfangsefnið. Þá verður jafnframt horft…Lesa meira

true

Íbúaþing um stefnumótun sóknaráætlunar var haldið í Hjálmakletti – myndasyrpa

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu síðdegis í gær fyrir íbúaþingi um endurskoðun sóknaráætlunar Vesturlands. Fór þingið fram í Hjálmakletti í Borgarnesi. Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður SSV, setti þingið og kynnti Héðinn Unnsteinsson ráðgjafa frá Úrbana til leiks. Héðinn fór yfir vinnu sem þegar hefur farið fram og það samráð sem haft hefur verið við mismunandi…Lesa meira

true

Flestar vestlensku árnar að stórbæta sig miðað við síðasta ár

Veiði er nú lokið í nokkrum laxveiðiám á landinu og stutt eftir af veiðitímabilinu í öðrum. Ef marka má veiðitölur Landssamband veiðifélaga í gær, miðvikudaginn 18. september, er ljóst að flestar árnar á Vesturlandi eru að bæta sig verulega miðað við heildarveiðina 2023. Á landsvísu er Þverá í Borgarfirði nú í þriðja sæti og Norðurá…Lesa meira

true

Hús tekur á sig mynd

Frá því í morgun og til hádegis í dag var lokað fyrir umferð við vesturenda Garðabrautar á Akranesi. Ástæðan var sú að verið var að steypa botnplötu milli fimmtu og sjöttu hæðar í nýju fjölbýlishúsi sem er í byggingu við Garðabraut 1. Húsið verður byggt á stöllum og verður hæst sjö hæðir næst hringtorginu. Fullbúið…Lesa meira