
Ráðherrarnir sem í hlut eiga auk fulltrúa sveitarstjórna sem skrifuðu undir samning. Ljósm. Stjórnarráðið
Ljósleiðaravæðingu verður að mestu lokið fyrir 2027
Búið er að rita undir samninga fjarskiptasjóðs ríkisins við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Af þessum 25 sveitarfélögum eru í þeim hópi Borgarbyggð, Grundarfjarðarbær, Reykhólahreppur, Snæfellsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund lögheimili í þéttbýli um land allt munu eiga kost á háhraðanetsambandi, sem er mikilvægt öryggismál og undirstaða nútíma búsetugæða. Með þessum samningum er sú óvissa ekki lengur fyrir hendi.