Fréttir

true

Göngur og réttir í Grundarfirði – myndasyrpa

Það viðraðri ágætlega á gangnamenn í Grundarfirði í síðustu viku. Fimmtudaginn 19. september var Kirkjufellið smalað og laugardaginn 21. september var Mýrarhyrna og fjallgarðurinn smalaður. Veður var gott þó að örlítil þoka hafi slæðst yfir toppa fjallanna. Það var svo dregið í dilka í Hrafnkelsstaðarétt og á Mýrum þar sem féð kom niður.Lesa meira

true

Sindri þáði boðið og sló met

Hlauparinn Sindri Karl Sigurjónsson úr Borgarnesi sló í gær 23 ára gamalt aldursflokkamet Kára Steins Karlssonar í 10 kílómetra götuhlaupi. Var þetta í annað skiptið sem Sindri slær metið en í fyrra skiptið var það ekki gilt en þá hljóp hann á 35:49 mínútum í Reykjavíkurmaraþoni, en það hlaup var ekki vottað. Sindri var boðinn…Lesa meira

true

Réttað í Reynisrétt undir Akrafjalli – myndasyrpa

Í blíðskapar veðri í gær var Akrafjallið smalað og féð rekið til Reynisréttar. Af láglendinu var mikilfenglegt að fylgjast með þegar vaskir smalar hóuðu fénu af fjallsbrún og leið það smám saman niður snarbrattar hlíðar og skriður og áleiðis til réttar. Gangnamenn voru að þessu sinni heppnir með veður og áttu von á því að…Lesa meira

true

FKA Vesturland telur í nýtt starfsár með nýrri stjórn

Ný stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi var kosin nú á dögunum. Alexandra Ýr Sigurðardóttir er nýr formaður deildarinnar, Jóhanna Elva Ragnarsdóttir gjaldkeri og Valdís Ósk Margrétardóttir ritari. Þá komu Silja Guðbjörnsdóttir inn sem samskiptatengill deildarinnar og meðstjórnendur eru þær Dr. Eyrún Eyþórsdóttir og Halldóra Guðjónsdóttir. „FKA Vesturland er vettvangur fyrir konur í atvinnulífinu…Lesa meira

true

Segja að hemja þurfi rányrkju bílastæðafyrirtækja á ferðamannastöðum

Á meira en 30 áfangastöðum ferðamanna víða um land eru að jafnaði rukkaðar 1.000 kr. fyrir að leggja bíl. Ef ekki er gengið frá greiðslu samdægurs fær bíleigandinn senda kröfu um 4.500 kr. vangreiðslugjald til viðbótar. Á flestum þessara staða er nýlega byrjað að rukka fyrir bílastæði sem áður voru gjaldfrjáls, án þess að nokkuð…Lesa meira

true

Allt að 240 nemendur í Reiðmanninum í vetur

Í vikunni sem leið var skólasetning í Reiðmanninum I, II og III og eru 150 nemendur að hefja nám í reiðmennsku og hestafræði á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands. Stefnir í að 230-240 nemendur verði í námi í Reiðmanninum veturinn 2024-2025 þar sem búist er við að a.m.k. 80 nemendur taki þátt í Keppnisnámi Reiðmannsins á…Lesa meira

true

Annar flokkur ÍA Bikarmeistari í knattspyrnu

Breiðablik og ÍA áttust við í úrslitaleik í Bikarkeppni KSÍ í 2. flokki karla í knattspyrnu síðasta miðvikudag og var leikurinn á Kópavogsvelli. Jón Breki Guðmundsson kom Skagamönnum yfir á 14. mínútu og staðan í hálfleik 0:1, ÍA í vil. Breiðablik jafnaði metin í byrjun seinni hálfleiks með marki Atla Þórs Gunnarssonar en aðeins tveimur…Lesa meira

true

Áætla að hefja niðurrif á Brákarbraut 25 í Borgarnesi

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær áætlun um niðurrif hluta hússins Brákarbrautar 25 í Brákarey, en það er gamla Sláturhús KB. Á fundi byggðarráðs voru kynntar þrjár sviðsmyndir um áfangaskiptingu við niðurrif hússins en ráðið óskaði eftir því við sveitarstjóra að gert verði kostnaðarmat um niðurrifið í samræmi við sviðsmynd nr. 2…Lesa meira

true

Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu

Eftir fimm ára hlé hafa KLAK – Icelandic Startups og Ferðaklasinn ákveðið að endurvekja Startup Tourism, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu. Opnað var fyrir umsóknir 19. september. Hraðallinn, var keyrður fjórum sinnum á árunum 2016-2019 og skilaði góðum árangri fyrir íslenska ferðaþjónustu, en 15 af þeim 39 sprotafyrirtækjum sem tóku þátt eru enn starfandi í…Lesa meira

true

Geðræktarganga í Búðardal

Að frumkvæði íbúa í Dölum var haldin geðræktarganga í Búðardal í gær, 19. september. Að sögn Lindu Guðmundsdóttur tóku um 20 manns á öllum aldri þátt í göngunni. Rauði krossinn hýsti viðburðinn og hittist hópurinn þar. Gengið var hring um Búðardal og að göngunni lokinni var boðið upp á kaffi og kakó í Rauða kross…Lesa meira