Áætla að hefja niðurrif á Brákarbraut 25 í Borgarnesi

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær áætlun um niðurrif hluta hússins Brákarbrautar 25 í Brákarey, en það er gamla Sláturhús KB. Á fundi byggðarráðs voru kynntar þrjár sviðsmyndir um áfangaskiptingu við niðurrif hússins en ráðið óskaði eftir því við sveitarstjóra að gert verði kostnaðarmat um niðurrifið í samræmi við sviðsmynd nr. 2 en hún felur í sér niðurrif á öllum húshlutum nema burstunum þremur í fyrsta áfanga verksins. Miðað við ástand hússins er það að óbreyttu slysagildra og að fráleitt sé að endurnýja húsið. Þá sé sá kostnaður sem nú fellur til við að halda hita og rafmagni á húsinu verulegur. Frá því starfsemi var hætt í húsinu hleypur sá kostnaður á tugum milljóna króna.

Áætla að hefja niðurrif á Brákarbraut 25 í Borgarnesi - Skessuhorn